blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

8.12.2005

tólfti áttundi

Fór uppá Eyjabakka og kárahnjúka í morgun. Verð nú að segja eins og er þá féll eg ekkert sérstaklega fyrir landslaginu en þar er ekki þar með sagt að ég skylji ekki andstæðinga og dýravini... bara svona mitt.. þar sem eg er ein að þeim sem finnst landslag aðlagandi og óendalega heillandi. Bjóst í alvöru við einhverju stærra dæmi en þetta er samt huge stórt. Það var svo klikkað mikil þoka á leiðinni þarna uppeftir.. sást ekki á milli stika... þannig þessi ferð tók aðeins lengri tíma en áætlað var.. samt fínt. Kom við í Hallormstaðaskóg á leiðinni til baka. Mikið er lyktin af trjánum æðislega góð.. ný búið að rigna og allt var eitthvað svo heillandi og ljómandi. Núna eru 2 tímar í flug!! hvað gerir kona á egilsstöðum ???? Inga!!!!!! Buin að skoða bæinn, fara í gallery, fara í blómagarðana, kíkja í blómabúðina og dúndurversluninna skóga ásamt fleiri, skoða allt í uppl miðstöðinni, kaupa mér síma og síðast en ekki síst!!!! keypti mér gallabuxur í KAUPFÉLAGINU.... ekki nóg með að eg hafi fengið þær þar.. þá voru þær á dúndur útsölu.. sem sagt eingin á Egilsstöðum vildi kaupa þær!!!!!!!! hhhmmmmm Er einvera mín orðin of löng? Er ég það háð félagsskap að ég missi allt vit þó maður hitti engan í viku sem maður þekkir!!! ?
Það er party og læti í kvöld og á morgun! veit ekki hversu aktíf eg verð þessa helgina... ætla samt alveg að vera með enda er þetta síðasta helgin hennar kötu minnar. Svo kemur Birta heim á sunnudaginn ... vá hvað eg hlakka til að knúsa hana :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home